Jólaglögg-Jólahlaðborð og Þorláksmessuskata

Hvenær var fyrst byrjað að bjóða upp á þessar kræsingar á veitingahúsum í Reykjavík

og hvaðan koma þessir siðir.

 

Jólaglögg og  Dansk Julefrukost á Jóladag, báðum þessum siðum kynntist ég á bernskuheimili mínu.

Faðir minn Elof Wessman var ættaður frá Broby á Skáni í föðurætt og í móðurætt frá Kaupmannahöfn.

Hann lagaði alltaf jólaglögg í aðdraganda Jólanna, en þeim sið kynntist hann á uppvaxtarárum sínum í Svíþjóð. Þar var til siðs að nota Jólaglögg sem hitagjafa áður en lagt var að stað til Kirkju snemma á Jóladagsmorgun, en til þeirra ferða voru notaðir opnir hestasleðar. Hver fjölskylda átti sína uppskrift og var hennar vel gætt. Ég á þessa uppskrift og lagaði Jólaglögg eftir henni og hafði á boðstólum á Jólaföstu bæði þegar ég var í forsvari á  Hótel Sögu og síðar á Holiday Inn ( nú Grand Hótel v/ Sigtún).

 

Ég man fyrst eftir Jólaglöggi á Hótel Sögu í lok sjöunda áratugarins, en þá stóð Flugfélag Íslands fyrir Jólafagnaði  síðdegis, síðasta laugardag fyrir Jól í Súlnasalnum og bauð til fagnaðarins  viðskiptamönnum og  öðrum velunnurum félagsins.

Þessi siður breiddist fljótt út, en færðist af veitingahúsunum í matstofur fyrirtækja og í heimahús. Þetta urðu með tímanum hin verstu fyllerí, en með tilkomu Jólahlaðborðanna var þessum sið nánast útrýmt.

 

Jólahlaðborðin tókum við upp eftir Dönum, en saga Jólahlaðborðanna á veitingahúsum í Danmörku má rekja til stríðsáranna 1940-1945 á þeim árum var allur matur skammtaður og  erfitt að fá hráefni til að laga hátíðarrétti. Þá byrjaði fjölskyldur,vinir eða heilu hverfin í Kaupmannahöfn að taka sig saman og slá í púkk, einn átti síld annar grísalær sá þriðji reykta grísasíðu osf. Síðan var fengið félagsheimili eða veitingahús fyrir fagnaðinn ( gestir keyptu öl og snafsa af veitingamanninum ).

Eftir stríð héldu veitingamenn í Danmörku þessum sið og buðu upp á Julefrokost í desember.

Ég kynntist þessum sið fyrst í lok sjöunda áratugarins, en þá var nánast útilokað að fá borð á veitingahúsum Kaupmannahafnar allan desembermánuð, en á sama tíma stóðu öll veitingahús í Reykjavík  tóm frá lok nóvember og fram á Þorra.

 

Ég tók þennan sið upp á Hótel Sögu og var fyrsta Jólahlaðborðið haldið í Grillinu 21. desember 1980 og stóð í tvo daga. Árið á eftir byrjaði ég viku fyrir Jól og gekk það vel.

 

Ég tók við veitinga-og ráðstefnurekstri Hótel Sögu 1982 og fékk  þá Gunnar Stein Pálsson markaðsmann í lið með mér til að markaðssetja Jólahlaðborð Hótel Sögu og lagði í þá herferð mikla peninga fyrir jólin 1982 og á árunum þar á eftir.

Þessi herferð  kom Jólahlaðborðunum endanleg á kortið á Íslandi.

 

Siðurinn að borða skötu á Þorláksmessu barst til höfuðstaðarins frá Vestfjörðum um miðja 20. öld en það var aðallega á Vestfjörðum og við Breiðafjörð sem skatan veiddist. Hún þótti reyndar ekki mikið lostæti en þar sem haustvertíðinni lauk á Þorláksmessu var skötuát í hugum margra nátengt þessum degi og fór mönnum að finnast það nauðsynlegt að fá skötu daginn fyrir jól. 

 

Ib Wessman bróðir minn sem var yfirmatreiðslumeistari í Naustinu 1956-1982 segir svo frá.

Ég man fyrst eftir að hafa soðið skötu þegar ég var við nám í matreiðslu á Gildaskálanum sem stóð við Aðalstræti 1953 fyrir einn af hluthöfum veitingastaðarins. Á þessum árum var það óþekkt að skata væri á matseðlum veitingahúsa.

 

Árið 1956 eða 1957  komu nokkrir skötukarlar úr verslunarbransanum í Reykjavík með Kjartan í Asíufélaginu í fararbroddi  og báðu mig um að sjóða fyrir þá skötu í hádeginu á laugardögum, var það auðsótt og voru þeir fastagestir hjá mér eftir það.

Árið 1959 setti ég saltfisk og skötu á matseðil Naustsins í hádeginu á laugardögum og hélst sá siður þar til ég hætti.

Árið 1965 bauð ég í fyrsta skipti upp á skötu á Þorláksmessu, fyrstu árin á kvöldin, en eftir 1970 eingöngu í hádeginu.

 

Á áttunda áratugnum fóru að myndast skötuhópar. Ég er meðlimur í einum slíkum sem heitir því ágæta nafni  THE ICELANDIC SKATE CLUB  og er stofnað 1971 af Emil Guðmundssyni þáverandi hótelstjóra á Hótel Loftleiðum og Sigurði Magnússyni þáverandi blaðafulltrúa Loftleiða. Við hittumst til skiptist á Fjörukránni eða Akranesi síðasta laugardag fyrir Jól, en í klúbbnum eru margir þekkri Akurnesingar.

 

Ég man fyrst eftir að skata væri á boðstólum á Hótel Sögu í kringum 1980 og þá fyrir smærri hópa. Fyrsti stóri hópurinn sem borðaði Þorláksmessuskötu á Sögu vor Frímúrarabræður 1986.

 

Wilhelm W.G.Wessman

Hospitality Consultant/Tourist Guide

wessman@itn.is


Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Wilhelm W G Wessman

Höfundur

Wilhelm W G Wessman
Wilhelm W G Wessman
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband